Innlent

Fangaverði á Litla-Hrauni vikið frá störfum eftir alvarlegt atvik sem er til rannsóknar lögreglu

Sveinn Arnarsson skrifar
Miikið er lagt upp úr virðingu við skjólstæðinga. Brot fangavarðarins er sagt fordæmalaust.
Miikið er lagt upp úr virðingu við skjólstæðinga. Brot fangavarðarins er sagt fordæmalaust.
Fangaverði á Litla-Hrauni hefur verið vikið frá störfum eftir að hann var talinn hafa brotið alvarlega gegn fanga í upphafi árs. Atvikið er talið það alvarlegt að það var kært til lögreglu sem rannsakar málið.

Þrír aðrir fangaverðir eru einnig grunaðir um að hafa hylmt yfir með gerandanum og kunna að eiga yfir höfði sér refsingu vegna þessa.

Fangaverðir þurfa oft á tíðum að beita valdi við störf sín. Á þetta brot fangavarðarins að hafa átt sér stað þegar þurfti að beita valdi gegn einum fanganum. Á hann að hafa farið langt fram úr meðalhófi við störf sín.

Málið var strax litið alvarlegum augum og tekið hart á því þegar það kom upp. Fangavörðurinn lét strax af störfum og lögreglu var gert viðvart. Málið er því rannsakað sem sakamál þar sem fangavörður er gerandi og fangi brotaþoli.

Páll Winkel fangelsismálastjóri.vísir/andri marinó
Páll Winkel fangelsismálastjóri staðfestir að mál sem þetta hafi komið upp. Hins vegar sé ekki tímabært að ræða það í fjölmiðlum.

„Ég get staðfest að upp hafi komið mál í fangelsinu sem er þess eðlis að stofnunin taldi rétt að tilkynna það til lögreglu. Það gerðum við um leið og málið kom upp á mánudaginn síðasta. Fangelsismálastofnun vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið á þessari stundu,“ segir Páll.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru engir líkamlegir áverkar á fanganum og líkamlegt ofbeldi hafi ekki átt sér stað. Valdbeiting fangavarðarins mun hafa að mjög miklu leyti verið andleg og særandi og verið niðurlægjandi fyrir fangann. Virðingar við skjólstæðinginn hafi ekki verið gætt.

Málið er mjög viðkvæmt og verst stofnunin og Litla-Hraun allra fregna um það. Halldór Valur Pálsson, forstöðumaður fangelsisins á Litla-Hrauni, vildi ekki tjá sig við fréttamann þegar eftir því var leitað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×