Innlent

Fangar vinni sér inn bótarétt

Silja trúir því að lagabreytingin fækki endurkomum í fangelsi.
Silja trúir því að lagabreytingin fækki endurkomum í fangelsi. Vísir/Pjetur
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur ásamt fleiri þingmönnum lagt fram frumvarp til breytinga á atvinnuleysistryggingum. Lagt er til að ef fangi hefur stundað nám, vinnu eða starfsþjálfun til samræmis við lög um fullnustu refsinga, þá teljist hann tryggður samkvæmt atvinnuleysistryggingalögum.

„Við erum sannfærð um að þessi lagabreyting myndi fækka endurkomum í fangelsi landsins og það hlýtur að vera samfélagslegt markmið í sjálfu sér,“ segir Silja Dögg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×