Menning

Fangar og Undir trénu með flest verðlaun

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Fangar og Undir trénu voru sigursælust á Edduverðlaunahátíðinni í kvöld.
Fangar og Undir trénu voru sigursælust á Edduverðlaunahátíðinni í kvöld. Skjáskot af RÚV
Edduverðlaunahátíðin fór fram með pompi og prakt í kvöld og var í beinni útsendingu á RÚV. Verðlaun voru veitt í 26 flokkum fyrir það sem þótti skara fram úr í íslenskri kvikmynda- og þáttagerð.

Sjónvarpsþáttaröðin Fangar, í leikstjórn Ragnars Bragasonar, hreppti flest verðlaun, eða tíu talsins en fast á hæla hennar kom kvikmyndin Undir trénu, í leikstjórn Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, með sjö verðlaun.

Fangar er íslensk þáttaröð sem sýnd var á RÚV í ársbyrjun 2017. Þáttaröðin er hugarfóstur leikkvennanna Unnar Aspar Stefánsdóttur og Nína Daggar Filippusdóttur og fjallar um konur sem sitja inni í kvennafangelsinu í Kópavogi. Ragnar Bragason fer með leikstjórn þáttaraðarinnar og Margrét Örnólfsdóttir skrifaði handritið.

Undir trénu, eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson, er dramatísk mynd um nágrannaerjur. Með aðalhlutverk fara þau Steinþór Hróar Steinþórsson, Edda Björgvinsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Selma Björnsdóttir, Þorsteinn Bachmann og Lára Jóhanna Jónsdóttir.

Edda Björgvinsdóttir hlaut Edduna í flokki leikkonu í aðalhlutverki og mótleikari hennar, Steinþór Hróar Steinþórsson var valinn besti leikari í aðalhlutverki.

Leitin að upprunanum er mannlífsþáttur ársins. Egill Aðalsteinsson t.v., Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Jón Grétar Gissurarson t.h.
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir tók á móti Edduverðlaunum sem hún og aðstandendur þáttanna Leitin að upprunanum hlutu fyrir að vera mannlífsþáttur ársins. Í þáttunum, sem sýndir eru á Stöð 2, fylgir Sigrún Ósk ættleiddum einstaklingum eftir í leit að uppruna sínum. Egill Aðalsteinsson er myndatökumaður þáttanna og Jón Grétar Gissurarson sá um klippingu.

Kvikmynd ársins

Undir trénu

Einnig tilnefndar: Svanurinn, Vetrarbræður



Leikstjórn

Hafsteinn Gunnar Sigurðsson fyrir Undir trénu 

Einnig tilnefnd: Ása Helga Hjörleifsdóttir fyrir Svaninn, Ragnar Bragason fyrir Fanga



Handrit

Huldar Breiðfjörð og Hafsteinn Gunnar Sigurðsson fyrir Undir trénu 

Einnig tilnefnd: Ása Helga Hjörleifsdóttir fyrir Svaninn, Margrét Örnólfsdóttir og Ragnar Bragason fyrir Fanga



Leikari í aðalhlutverki

Steinþór Hróar Steinþórsson fyrir Undir trénu

Einnig tilnefndir: Elliott Crosset Hove fyrir Vetrarbræður, Jóhannes Haukur Jóhannesson fyrir Ég man þig



Leikkona í aðalhlutverki

Edda Björgvinsdóttir fyrir Undir trénu

Einnig tilnefndar: Gríma Valsdóttir fyrir Svaninn, Heiða Rún Sigurðardóttir fyrir Stellu Blómkvist



Leikari í aukahlutverki

Sigurður Sigurjónsson fyrir Undir trénu

Einnig tilnefndir: Þorsteinn Bachmann fyrir Undir trénu, Lars Mikkelsen fyrir Vetrarbræður



Leikkona í aukahlutverki

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fyrir Fanga

Einnig tilnefndar: Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Fanga, Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir Fanga



Kvikmyndataka

Árni Filippusson fyrir Fanga

Einnig tilnefndir: Jakob Ingimundarson fyrir Ég man þig, Martin Neumeyer fyrir Svaninn



Klipping

Valdís Óskarsdóttir, Sigurður Eyþórsson og Sverrir Kristjánsson fyrir Fanga

Einnig tilnefndir: Guðni Hilmar Halldórsson og Gunnar Bjarni Guðbjörnsson fyrir Stellu Blómkvist Kristján Loðmfjörð fyrir Undir trénu



Brellur

The Gentlemen Broncos: Alexander Schepelern, Emil Pétursson og Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Undir trénu

Einnig tilnefndir: Kontrast: Davíð Jón Ögmundsson, Sigurgeir Arinbjarnarson og Arnar Jónsson fyrir Stellu Blómkvist, Pétur Karlsson fyrir Svaninn



Leikmynd

Heimir Sverrisson fyrir Fanga 

Einnig tilnefndir: Haukur Karlsson fyrir Stellu Blómkvist, Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Undir trénu



Tónlist

Pétur Ben fyrir Fanga

Einnig tilnefndir: Daníel Bjarnason fyrir Undir trénu, Gunnar Örn Tynes og Örvar Smárason fyrir Svaninn



Hljóð

Huldar Freyr Arnarson, Pétur Einarsson og Daði Georgson fyrir Fanga 

Einnig tilnefnd: Björn Viktorsson, Frank Mølgaard Knudsen og Sylvester Holm fyrir Undir trénu, Tina Andreas fyrir Svaninn



Búningar

Helga Rós V. Hannam fyrir Fanga

Einnig tilnefndar: Eva Vala Guðjónsdóttir fyrir Stellu Blómkvist, Sylvia Dögg Halldórsdóttir fyrir Svaninn



Gervi

Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir Fanga

Einnig tilnefndar: Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Out of Thin Air, Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir Stellu Blómkvist



Heimildarmynd

Reynir sterki 

Einnig tilnefndar: Háski fjöllin rumska Out of Thin Air



Leikið sjónvarpsefni

Fangar

Einnig tilnefnt: Loforð, Stella Blómkvist



Barna- og unglingaefni

Sumarbörn

Einnig tilnefnt: Loforð, Örkin



Frétta- eða viðtalsþáttur

Kveikur 

Einnig tilnefndir: Auðæfi hafsins 2, Fósturbörn



Menningarþáttur

Framapot

Einnig tilnefndir: Kiljan, Klassíkin okkar, Opnun, Tungumál framtíðarinnar



Mannlífsþáttur

Leitin að upprunanum

Einnig tilnefndir: Hæpið, Paradísarheimt, Ævar vísindamaður, Ævi



Skemmtiþáttur

Áramótaskaup 2017 

Einnig tilnefndir: Andri á flandri í túristalandi, Hulli 2



Stuttmynd

Atelier

Einnig tilnefndar: Frelsun, Munda



Sjónvarpsmaður ársins

Unnsteinn Manuel Stefánsson fyrir Hæpið 

Einnig tilnefndar: Guðrún Sóley Gestsdóttir fyrir Kastljós og Menninguna, Sigríður Halldórsdóttir fyrir Ævi, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fyrir Leitina að upprunanum, Sigyn Blöndal fyrir Stundina okkar



Upptöku- eða útsendingastjórn

Helgi Jóhannesson og Vilhjálmur Siggeirsson fyrir Söngvakeppnina 2017

Einnig tilnefndir: Helgi Jóhannesson fyrir Njálu, Jón Haukur Jensson fyrir Voice Live, Þór Freysson fyrir Kórar Íslands, Þór Freysson fyrir Nýdönsk: sjálfshátíð í sjónvarpssal



Sjónvarpsefni ársins (kosning á ruv.is)

Fangar

Einnig tilnefnt: Fósturbörn, Kveikur, Leitin að upprunanum, Loforð, Opnun, Stella Blómkvist, Ævi, Örkin


Tengdar fréttir

Verðlaunin tileinkuð kvenföngum

Unnur Ösp flutti þrumuræðu á Edduverðlaunahátíðinni þegar hún tók við verðlaunum fyrir leikið sjónvarpsefni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×