Innlent

Fá­mennt á Bessa­stöðum að frá­töldum ferða­mönnum í leit að Geysi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bessastaðir baðaðir sól.
Bessastaðir baðaðir sól. Vísir/GVA
Rólegt hefur verið á Bessastöðum það sem af er degi. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tilkynnti í gær að hann myndi ræða við forystumenn flokkanna í dag og því von á að einhverjir formenn flokka kíki í heimsókn. Guðni ætlar að taka afstöðu til veitingar stjórnarmyndunarumboðs á næstu dögum að því er sagði í tilkynningu frá forsetaembættinu í gær.

Guðni fundaði sem kunnugt er í gær með formönnum allra flokka sem fengu þingmenn kjörna á Alþingi. Mættu formennirnir hver á fætur öðrum frá tíu um morguninn til klukkan fjögur síðdegis þegar Oddný Harðardóttir mætti fyrir hönd Samfylkingarinnar. Að loknum fundi með forseta sagði hún af sér formennsku flokksins.

Sjá einnig:Ætluðu í Þórsmörk en enduðu í grillveislu hjá Þór

En þótt enginn formaður flokkanna sé mættur á Bessastaði það sem af er degi hafa erlendir ferðamenn látið sjá sig. Þar má segja að eldri maður ásamt ungum manni og konu um þrítugt hafi stolið senunni þegar þau renndu í hlað að kirkjunni á bílaleigubíl sínum. Þau voru með kort á lofti á gangi í leit að Geysi, rúmlega hundrað kílómetra frá Haukadal. Misskilningurinn var fólginn í því að verslunin Geysir var merkt inn á kortið í kringum Bessastaði. 

Fulltrúi fréttastofu á staðnum ræddi við ferðamennina og fengu leiðbeiningar um hvernig væri best að koma sér á hverasvæðið í Haukadal.


Tengdar fréttir

Samfylkingin fjarlægst tilgang sinn

Uppi eru hugmyndir innan Samfylkingarinnar um að breyta um ásýnd, sameinast öðrum flokkum eða leggja flokkinn niður.

Útspil Pírata opinberar plön Viðreisnar

Fleiri möguleikar á stjórnarmyndun eru á borðinu nú en áður. Vinstriblokkin reynir af öllum mætti að mynda stjórn án Sjálfstæðisflokksins. Viðreisn er lykilflokkur við myndun nýrrar ríkisstjórnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×