Innlent

Falsarar dæmdir

Mennirnir fölsuðu 83 fimm þúsund krónu seðla.
Mennirnir fölsuðu 83 fimm þúsund krónu seðla.

Þrír menn voru dæmdir fyrir fjölmörg og margvísleg brot í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Tveir þeirra, annar tvítugur og hinn rúmlega tvítugur, voru meðal annars ákærðir fyrir að falsa 83 fimm þúsund króna seðla, að upphæð samtals 415 þúsund krónur, í því skyni að koma þeim í umferð sem ósviknum gjaldeyri.



Við falsanirnar var notaður sambyggður litprentari og skanni. Mönnunum tókst að koma fáeinum seðlum í umferð með því að versla fyrir þá.

Ákærur ríkissaksóknara á hendur mönnunum eru í sjö liðum og ná yfir fyrrnefndar peningafalsanir, brot á fíkniefnalögum og vopnalagabrot. Ákærur lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á hendur þeim eru samtals í 56 liðum. Þær varða margvísleg þjófnaðarmál, fíkniefnalagabrot, hylmingu, skjalafals, umferðarlagabrot, vopnalagabrot, fjársvik og nytjastuldi.



Sá mannanna sem sá um að falsa peningaseðlana fékk þyngsta dóminn, 13 mánaða fangelsi. Annar var dæmdur í 12 mánaða fangelsi og hinn þriðji í sex mánaða fangelsi. Hann var jafnframt sviptur ökuréttindum í fjögur ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×