Leikjavísir

Fallon spilaði á Nintendo Switch

Samúel Karl Ólason skrifar
Þáttastjórnandinn Jimmi Fallon fékk nýverið að prófa nýjustu leikjatölvu Nintendo í þætti sínum og jafnvel að spila leikinn The Legend of Zelda: Breath of the Wild. Fyrst þó spilaði Fallon Super Mario Run sem Nintendo gerði fyrir snjalltæki.

Eggie Fils-Aime, yfirmaður Nintendo í Ameríku kíkti í heimsókn og virðist sem að Fallon hafi ekki vitað að hann fengi að prófa Switch. Þar að auki var Shigeru Miyamoto, höfundur Donkey Kong, Super Mario og Legend of Zelda, sem sat hinn rólegasti meðal áhorfenda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×