Sport

Fallið hátt fyrir Sharapovu sem er tekjuhæst allra íþróttakvenna

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Maria Sharapova fær ekki meiri pening frá Nike í bili.
Maria Sharapova fær ekki meiri pening frá Nike í bili. vísir/getty
Rússneska tennisdrottningin Maria Sharapova greindi frá því í gær að hún féll á lyfjaprófi á opna ástralska meistaramótinu og á hún yfir höfði sér tveggja ára keppnisbann.

Fallið verður hátt fyrir þessa 28 ára gömlu afrekskonu sem hefur verið eitt af andlitum kvennatennisi í heiminum um margra ára skeið.

Sjá einnig: Svona greindi Sharapova frá lyfjaprófinu | Myndband

Sharapova er gríðarlega vinsæl, en hæfileikar hennar og útlit hafa gert hana að tekjuhæstu íþróttakonu heims. Hún hefur trónað á toppi lista Forbes yfir tekjuhæstu íþróttakonur heims mörg undanfarin ár.

Sharapova er andlit fjölmargra vörumerkja og auglýsir allt frá íþróttafatnaði til sælgætis. Tekjur hennar á tennisvellinum eru ekki á meðal þeirra hæstu enda komst hún aðeins í úrslit á einu risamóti árið 2015 (opna ástralska) og í undanúrslit á Wimbledon.

Þrátt fyrir það þénaði Sharapova 30 milljónir dala á síðasta ári eða 3,8 milljarði króna. Hún var langt á undan Serenu Williams sem var næst tekjuhæsta íþróttakona heims á síðasta ári með 25 milljónir dala í tekjur eða 3,1 milljarð króna.

Sjá einnig:Sharapova: Ég axla fulla ábyrgð

Sharapova hefur á sínum ferli unnið fimm risamót en aðeins eitt síðan 2008. Serena Williams, lang besta tenniskona heims, hefur á sama tíma unnið tólf risamót og í heildina 21 risamót.

Hvort þessi lyfjaskandall verði nóg til að fella Sharapovu af stalli sem tekjuhæstu íþróttakonu heims á eftir að koma í ljós. Íþróttavöruframleiðandinn Nike er nú þegar búinn að tilkynna að hann sé hættur að styrkja Sharapovu, en hún hefur verið eitt af andlitum Nike í áratug.


Tengdar fréttir

Sharapova féll á lyfjaprófi

Tennisdrottningin Maria Sharapova greindi frá því í kvöld að hún hefði fallið á lyfjaprófi.

Sharapova: Ég axla fulla ábyrgð

Sá fáheyrði atburður gerðist í kvöld að íþróttamaður axlaði ábyrgð eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×