Innlent

Fallið frá ákæru á hendur einni konunni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá þingfestingu málsins í september.
Frá þingfestingu málsins í september. Vísir/SÁP
Ríkissaksóknari hefur ákveðið að falla frá ákæru á hendur einni af fimm ungum konum sem sakaðar eru um líkamsárás á sautján ára stúlku í mars 2013. Þetta kom fram í upphafi aðalmeðferðar málsins sem fram fer í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Meint árás átti sér stað fyrir utan skemmtistaðinn Úrillu Górilluna í Austurstræti þann 28. mars í fyrra. Konurnar fimm, sem eru á aldrinum nítján ára til 21 árs, neituðu allar sök við þingfestingu í málinu í september en ein þeirra viðurkenndi að hafa rifið í hár stúlkunnar og sparkað í fótlegg hennar.

Í ákærunni eru tvær kvennanna sakaðar um að hafa fyrst ráðist á fórnarlambið með því að rífa í hár hennar inni á kvennaklósetti skemmtistaðarins. Ein þeirra tveggja auk hinna þriggja hafi í kjölfarið rifið í hár hennar, sparkað og slegið í höfuð og líkama hennar fyrir utan skemmtistaðinn. Fallið var frá ákæru á hendur annarri ungu konunni, sem er tvítug, sem var sökuð um að rífa í hár stúlkunnar inni á salernum.


Tengdar fréttir

Ungu konurnar fimm neituðu allar sök

Þingfesting var í máli fimm ungra kvenna í morgun sem ákærðar eru fyrir hrottafengna líkamsárás á síðasta ári. Þeim er gefið að sök að hafa ráðist á konu á skemmtistað í Reykjavík þann 28. mars í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×