Lífið

Falleg íslensk heimili: Felix og Baldur búa í einstöku einbýlishúsi í Vesturbænum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega falleg eign.
Virkilega falleg eign.
Nýr íslenskur þáttur hóf göngu sína á Stöð 2 á sunnudagskvöldið og heitir hann Falleg íslensk heimili.

Þar fá sérfræðingarnir Gulla Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, Helgi Ómarsson, ljósmyndari og stílisti og Þóra Margrét Baldvinsdóttir hönnunarráðgjafi það skemmtilega verkefni að skoða falleg íslensk heimili.

Markmiðið er að ná fram því sem fallegt er og gleður augað. Sitt sýnist hverjum en svo mikið er víst að það er alltaf fróðlegt að fá umfjöllun um mismunandi arkitektúr, hverfi og hugmyndir manna um híbýli. Síðast en ekki síst er einfaldlega gaman að sjá hvernig aðrir hafa hreiðrað um sig.

Þrjú heimili eru heimsótt í hverjum þætti og fá sérfræðingarnir aldrei að hitta þá sem búa í eigninni. Í fyrsta þættinum var farið í heimsókn til Felix Bergssonar og Baldurs Þórhallssonar sem búa á Starhaga í virkilega fallegu einbýlishúsi.

Það sem gerir þá sögu virkilega skemmtilega er að Felix ólst upp í þessu húsi og flutti svo aftur síðar með Baldri eftir dágóða umhugsun og sannfæringu Baldurs. Þeir gerðu þó nokkrar breytingar og eru alsælir í þessu fallega hús eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×