Lífið

Falleg hátíð fyrir fallegt fólk

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Nóg var um að vera þegar ljósmyndara bar að garði. Innipúkatorgið var allt að smella saman í gær og nóg verður um dýrðir þar í dag og kvöld.
Nóg var um að vera þegar ljósmyndara bar að garði. Innipúkatorgið var allt að smella saman í gær og nóg verður um dýrðir þar í dag og kvöld. Vísir/Eyþór
„Þetta er að mínu mati eina tónlistarhátíðin um helgina. Hér erum við ekkert að djóka og hingað er fólk komið til þess að hafa það náðugt, vera saman, ræða við gamla vini og hitta nýja. Uppgötva nýja tónlist og hlusta á það sem það hefur verið að hlusta á mörg ár og fílar í botn. Vera saman, njóta þess og bera virðingu hvert fyrir öðru því það er engin þolinmæði hjá skipuleggjendum Innipúkans eða gestum hátíðarinnar fyrir ofbeldi af einhverri sort. Þetta er falleg hátíð, á hana kemur bara fallegt fólk að innan sem og utan og ég vonast til þess að helgin verði eftir því falleg,“ segir Ásgeir Guðmundsson, einn af skipuleggjendum tónlistar- og götuhátíðarinnar Innipúkans sem fer fram venju samkvæmt í miðbæ Reykjavíkur um helgina.

Fjölbreytt dagskrá er í boði á hátíðinni og auk ýmiss konar tónlistar­atriða er skemmtileg dagskrá á Innipúkatorginu sem er fyrir utan skemmtistaðina Húrra og Gaukinn. „Á torginu verða plötusnúðar, í dag er fatamarkaður og á morgun myndlistarmarkaður, svo verður pub-quiz og ég veit ekki hvað og hvað,“ segir Ásgeir eldhress og mælir sterklega með því að þeir sem ætla að halda sig í bænum kíki á hátíðina en torgið hefur verið tyrft og hægt verður að kaupa ýmsar veitingar og veigar þar um helgina og ættu öll skilningarvitin því að vera vel nærð á Innipúkanum.

Dagskráin á torginu hefst klukkan 14.00 í dag og tónleikadagskrá kvöldsins hefst klukkan 20.00. Meðal þeirra tónlistaratriða sem fram koma í kvöld eru Helgi Björnsson & Boogie Trouble, Kött Grá Pje, Hildur og Friðrik Dór. Annað kvöld koma meðal annars fram Aron Can, Emmsjé Gauti, Grísalappalísa og Karó.

Miða á hátíðina má nálgast á staðnum þótt aðstandendur hennar mæli með því að fjárfesta í miða á vefsíðunni Tix.is. Dagspassar kosta 3.990 og miði á alla daga hátíðarinnar kostar 7.990 krónur. Dagskráin fer fram á skemmtistöðunum Húrra og Gauknum. 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Diskó útgáfur af smellum Helga Björns

Helgi Björns og diskóboltarnir í Boogie Trouble munu sameinast í eina kvöldstund á Innipúkanum og ætla að taka diskó-rokk bræðingsútgáfur af nokkrum af þeim ótal smellum sem er að finna í smiðju Helga Björns






Fleiri fréttir

Sjá meira


×