Innlent

Fall af hestbaki á Íslandi olli dauða bresks manns

Jakob Bjarnar skrifar
Maðurinn þorði ekki að greina frá slysinu af ótta við að það hefði áhrif á tryggingar sínar.
Maðurinn þorði ekki að greina frá slysinu af ótta við að það hefði áhrif á tryggingar sínar. skjámyndir af Daily Mail
Breskur maður andaðist eftir slys sem hann varð fyrir á Íslandi, en hann féll af hestbaki þegar hann var hér í fríi fyrir hálfu ári. Honum blæddi út vegna innvortis meiðsla sem hann hlaut við fallið. Maðurinn hélt slysinu og meiðslum sínum leyndum því hann taldi að það kynni að fella úr gildi ferðatryggingu sem hann hafði keypt.

Daily Mail greinir frá þessu. Maðurinn heitir Paul Schofield, hann var 58 ára gamall tveggja barna faðir og hafði farið á spítala á Íslandi eftir atvikið. Þar hélt hann því fram að hann væri með brákuð rifbein. Hann óttaðist að tryggingafélagið myndi líta svo á að reiðtúrinn flokkaðist undir gáleysislegt athæfi. Þess í stað sagðist hann hafa runnið til á ösku, og dottið á gangstétt í Reykjavík. Læknarnir hugðu því ekki að sér og útskrifuðu hann með lyfseðil uppá verkjalyf. Hann hneig hins vegar niður þegar hann kom aftur í íbúðina í Reykjavík.

Honum var þá ekið í snatri á Landspítala Háskólasjúkrahús með sjúkrabíl en dó eftir aðgerð. Rannsóknir leiddu í ljós að dánarorsökin var rifið milta.

Schofield var frá Stockport í nágrenni Manchester og hafði hann keypt ferð til Íslands sem jólagjöf til sín sjálfs og Rosalyn Davies, konu sem hann var í sambandi með. Fóru þau til Íslands í leyfi í apríl á þessu ári.

Eins og áður segir greinir Daily Mail frá þessu og þar má sjá talsvert ítarlegri umfjöllun um þessa ferð sem endaði svo hörmulega.

Daily Mail fjallar ítarlega um málið í dag.skjámynd af Daily Mail

Tengdar fréttir

Lögregla skoðar læknamistök á Landspítala

Breskur karlmaður um fimmtugt lést á Landspítalanum um helgina að því er talið er vegna mistaka við umönnun. Lögregla hefur tekið skýrslu af þeim sem komu að meðferð sjúklingsins.

Talið að erlendur ferðamaður hafi látist vegna mistaka á Landspítala

Erlendur karlmaður lést á Landspítalanum um helgina að því er talið er vegna mistaka við umönnun. Bæði landlækni og lögreglu var gert viðvart vegna málsins. Á hverju ári koma upp á bilinu átta til tólf mál á Landspítalanum þar sem dauðsföll eða varanlegur miski hljótast af mistökum starfsfólks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×