Fótbolti

Fálkinn hefur náð flugi á nýjan leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Radamel Falcao er byrjaður að raða inn mörkum á nýjan leik.
Radamel Falcao er byrjaður að raða inn mörkum á nýjan leik. vísir/getty
Radamel Falcao og félagar hans í Monaco eru mættir til Man­chester þar sem þeir mæta Manchester City í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Falcao þekkir staðhætti í borginni en hann lék sem lánsmaður með erkifjendum City, Manchester United, tímabilið 2014-15. Kólumbíumaðurinn átti ekkert sérstöku gengi að fagna hjá United, gekk illa að festa sig í sessi og skoraði aðeins fjögur mörk í 29 leikjum. Tímabilið á eftir fór Falcao til Chelsea og þar gekk enn verr.

Nú er öldin önnur. Falcao er farinn að skora aftur og minnir á gamla Falcao sem var einn beittasti framherjinn í bransanum áður en hann sleit krossbönd í hné í byrjun árs 2014. Þau meiðsli rændu hann HM í Brasilíu og virtust hafa rænt hann ferlinum.

Falcao er hins vegar leikmaður endurfæddur og fer fyrir einu skemmtilegasta sóknarliði Evrópu. Monaco hefur farið á kostum í frönsku úrvalsdeildinni í vetur; liðið er með þriggja stiga forskot á toppnum og búið að skora 76 mörk í 26 leikjum, eða næstum því þrjú mörk að meðaltali í leik. Falcao hefur gert 16 af þessum 76 mörkum Monaco.

Í kvöld mæta Falcao og félagar á Etihad-völlinn og iða væntanlega í skinninu að hrella City-vörnina sem er langt frá því að vera sú sterkasta. Og Pep Guardiola, knattspyrnustjóri City, er meðvitaður um hættuna sem stafar af Monaco.

„Þeir eru með heilsteypt lið og það fremsta í Evrópu þegar kemur að því að skora mörk. Þetta verður erfið viðureign en við hlökkum til,“ sagði Guardiola á blaðamannafundi fyrir leikinn sem hefst klukkan 19:45. Á sama tíma hefst leikur Bayer Leverkusen og Atlético Madrid, silfurliðsins frá því í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×