Erlent

Faldi sig í dekkjabúnaði farþegaþotu í fimm tíma flugi

visir/ap
Sextán ára gamall drengur lifði af ótrúlega flugferð þegar hann faldi sig í dekkjabúnaði farþegaþotu í fimm tíma flugi frá Kaliforníu til Havaí í gær.

Talsmaður Hawaiian Airlines segir að starfsfólk hafi komið auga á drenginn við lendingu í gærmorgun.

Hann var yfirheyrður af bandarísku alríkislögreglunni, FBI, og sendur í læknisskoðun en virtist vel á sig kominn líkamlega.

Talsmaður FBI sagði að drengurinn væri heppinn að vera á lífi en hann lifði af nístingsskulda og súrefnisskort þegar vélin flaug í 39 þúsund feta hæð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×