Innlent

Faldi amfetamín í frystihólfi

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Pjetur
Lögreglan á Suðurnesjum stóð rúmlega þrítugan mann að vörslu amfetamíns í hýbýlum sínum. Þangað fór lögreglan nýverið í húsleit og fann efnið í frystihólfi í ísskáp á heimilinu.

Meðleigjandi mannsins var einnig í íbúðinni þegar húsleitin stóð yfir og framvísaði hann kannabisefnum og kannabisfræjum til lögreglunnar.

Lögreglan vill minna á fíkniefnasímann 800-5005, en í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×