Enski boltinn

Falcao mættur til Manchester - Huntelaar til Arsenal?

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Klaas-Jan Huntelaar gæti verið á leið til Arsenal.
Klaas-Jan Huntelaar gæti verið á leið til Arsenal. vísir/getty
Kólumbíski markahrókurinn RadamelFalcao er mættur til Manchester, en hann var myndaður áðan fyrir utan Carrington, æfingasvæði United, þar sem hann er á leið í læknisskoðun.

Falcao er nýstiginn upp úr krossbandsslitum sem héldu honum frá keppni á HM í sumar, en þessi öflugi framherji verður á láni fyrstu leiktíðina á Old Trafford, að því breskir miðlar halda fram.

Arsenal er að fá Danny Welbeck, að því fram kom í frétt Sky Sports fyrr í dag, og nú virðist annar framherja mögulega vera á leið á Emirates-völlinn.

Hollenska dagblaðið Jung Welt greinir frá því að Arsenal ætli að borga Schalke 12,75 milljóna punda riftunarverð hollenska landsliðsmannsins Klaas-Jan Hunterlaar.

Huntelaar hefur spilað 101 leik fyrir Schalke í þýsku 1. deildinni og skorað 60 mörk. Þá hefur hann skorað 35 mörk í 65 landsleikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×