Enski boltinn

Falcao fær annað tækifæri á Englandi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Falcao og félagar í kólumbíska landsliðinu féllu úr leik í 8-liða úrslitunum í Suður-Ameríkukeppninni.
Falcao og félagar í kólumbíska landsliðinu féllu úr leik í 8-liða úrslitunum í Suður-Ameríkukeppninni. vísir/getty
Chelsea og Monaco hafa komist að samkomulagi um að kólumbíski framherjinn Radamel Falcao verði lánaður til Englandsmeistaranna á næsta tímabili.

Þetta verður annað tímabil Falcaos á Englandi í röð en hann lék sem lánsmaður með Manchester United í fyrra. Framherjinn náði sér ekki á strik í herbúðum United og skoraði aðeins fjögur mörk í 29 deildarleikjum.

José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, virðist hins vegar hafa trú á Falcao sem fór á kostum þegar hann lék með Porto og Atlético Madrid.

Hjá Chelsea hittir hann fyrir fyrrum samherja sína hjá Atlético; Diego Costa, Thibaut Courtois og Filipe Luís.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×