Enski boltinn

Falcao á Old Trafford

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mun Falcao klæðast treyju númer níu hjá Manchester United.
Mun Falcao klæðast treyju númer níu hjá Manchester United. Vísir/Getty
Flest virðist benda til þess að kólumbíski framherjinn Radamel Falcao sé á leið til Manchester United. Fyrstu fréttir hermdu að United myndi kaupa Kólumbíumanninn, en samkvæmt fréttum breskra fjölmiðla í morgun er um lánssamning að ræða.

Falcao, sem hefur m.a. verið orðaður við Evrópumeistara Real Madrid í sumar, er einn skæðasti framherji heimsins.

Hann gekk í raðir Monaco frá Atletico Madrid fyrir síðustu leiktíð. Falcao skoraði níu mörk í 17 deildarleikjum fyrir franska liðið á síðustu leiktíð, en hann eyddi stórum hluta á hliðarlínunni vegna hnémeiðsla sem héldu honum einnig frá keppni á HM í Brasilíu.

Verði lánssamningurinn að veruleika verður Falcao sjötti leikmaðurinn sem United fær í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×