Enski boltinn

Falcao: Juventus? Ég er með fulla einbeitingu á United

Anton Ingi Leifsson skrifar
Falcao í leik með United.
Falcao í leik með United. vísir/getty
Radamel Falcao, framherji Manchester United, segir að hann sé með fulla einbeitingu við Manchester United. Framherjinn hefur verið orðaður við Juventus undanfarna daga.

Þessi 29 ára Kólumbíumaður hefur ollið vonbrigðum hjá United. Hann var fenginn til United fyrir háar upphæðir, en hann er á láni frá AS Monaco.

„Juventus að leitast eftir mér? Eg er með 100% einbeitingu á United," sagði hann við Radio Caracol.

Falcao sagði í síðustu viku að hann vonaðist til að á næsta tímabili myndi hann vera í félagi þar sem hann spilaði reglulega. Hann vonast til að hann eigi eftir að byrja fleiri leiki hjá United áður en tímabilið er á enda.

„Áður en tímabilinu lýkur koma mikilvægir leikir og ég vonast til þess að staðan breytist," en hann hefur ekki byrjað marga leiki í United-treyjunni.

United á eftir virkilega erfiða leiki í barátunni um Meistaradeildarsæti. Þeir eiga eftir að spila við City, CHelsea og Arsenal. Fyrsti leikurinn eftir landsleikjahléið verður þó gegn Aston Villa á laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×