Lífið

Fáklædd á forsíðu LOVE

Kendall Jenner er í engu nema risa loðhúfu á forsíðu LOVE-tímaritsins.

Jenner, sem er átján ára gömul, er á forsíðu tímaritsins nú í júlí en myndirnar inni í blaðinu eru ekki síður djarfar.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall er nánast nakin fyrir allra augum.

Í apríl síðastliðnum var hún ber að ofan í myndatöku fyrir aprílblað Interview Magazine.

Í nóvember á síðasta ári deildi hún mynd með aðdáendum sínum á Instagram-reikningi sínum þar sem hún var ber að ofan, í hafmeyjubúningi.





Og í febrúar síðastliðnum gekk hún tískupallana fyrir Marc Jacobs í gegnsærri peysu.





Kendall deildi einnig myndum innan úr nýjasta tölublaði LOVE á Instagram:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×