Innlent

Fáir þolendur notfæra sér fría sálfræðiaðstoð

Snærós Sindradóttir skrifar
Neyðarmóttaka fyrir þolendur nauðgana er staðsett á Landspítalanum í Fossvogi og er opin allan sólarhringinn, allan ársins hring.
Neyðarmóttaka fyrir þolendur nauðgana er staðsett á Landspítalanum í Fossvogi og er opin allan sólarhringinn, allan ársins hring. vísir/heiða helgadóttir
Rétt ríflega þriðjungur þeirra sem leita til Neyðarmóttöku fyrir þolendur nauðgana nýtir sér þá ókeypis sálfræðiaðstoð sem í boði er. Tæplega helmingur þeirra sem þjónustuna þiggja endar á að klára meðferð og útskrifast í samráði við sálfræðing Neyðarmóttökunnar. Hlutfallið er allt of lágt, að mati verkefnastjóra sálfræðiþjónustu Neyðarmóttökunnar.

„Öllum 18 ára og eldri sem leita til Neyðarmóttökunnar er boðið upp á sálfræðiþjónustu sem stendur síðan til boða eins lengi og þörf er á stuðningi eða meðferð við afleiðingum kynferðisofbeldisins,“ segir Agnes Björg Tryggvadóttir verkefnastjóri. Þjónustan er gjaldfrjáls en alla jafna fá þeir sem koma á móttökuna símtal einum til tveimur dögum síðar og býðst viðtal innan einnar til tveggja vikna frá komu.

Alls þiggja 62,5 prósent ekki þjónustuna, ýmist með því að mæta ekki í boðaðan tíma eða með öðrum hætti. Af þeim sem nýta þjónustuna útskrifast 46 prósent en 54 prósent nýta þjónustuna ekki að fullu og hætta að mæta.

Starfsmenn Neyðarmóttökunnar grunar að tilraun þolenda til að forðast ofbeldið sem mest, og láta jafnvel eins og það hafi aldrei gerst, spili þar stóran þátt. „Við vitum að fólk sem er nýbúið að lenda í alvarlegum áföllum vill gjarnan forðast að tala og hugsa um atburðinn. Þar af leiðandi smitast það í eftirfylgdarþjónustuna líka. Svo getur vel verið að einhverjir vilji ekki sálfræðiþjónustu eða telji sig ekki þurfa á henni að halda,“ segir Agnes.

Agnes segir að sama mynstur sjáist þar sem sambærileg þjónusta er veitt erlendis. Hún segir að það að forðast að hugsa til áfallsins án þess að tækla það gefist ekki vel til lengri tíma. „Það er ekki vænleg leið. Við vitum að forðunin er eitt af því sem hindrar að fólk jafni sig.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×