Innlent

Fáir hafa nýtt réttinn til að skipta um heilsugæslustöð

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Sautján heilsugæslustöðvar eru nú á höfuðborgarsvæðinu og tólf sjálfstætt starfandi læknar.
Sautján heilsugæslustöðvar eru nú á höfuðborgarsvæðinu og tólf sjálfstætt starfandi læknar. vísir/ernir
Innan við 1% þeirra sem eru skráðir með heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu hafa nýtt sér þann möguleika sem gafst um áramótin að skipta um heilsugæslustöð. Þessi tala er þó líklega ekki marktæk, að sögn Ingveldar Ingvarsdóttur, deildarstjóra hjá Sjúkratryggingum Íslands.

„Í byrjun janúar var verið að leiðrétta skráningar. Verið var að ljúka við skráningu þeirra sem ekki höfðu heilsugæslustöð og einnig var nokkuð um að einstaklingar væru skráðir á tveimur stöðum, bæði hjá sjálfstætt starfandi heimilislækni og á heilsugæslustöð. Það er ekki heimilt,“ greinir Ingveldur frá.

"Með þessu myndast hvati hjá heilsugæslustöðvum að bjóða upp á betri þjónustu við sína skjólstæðinga.“ Ingveldur Ingvarsdóttir, deildarstjóri hjá Sjúkratryggingum Íslands.
Samkvæmt nýja fjármögnunarkerfinu sem tók gildi um áramótin eiga allir sjúkratryggðir að vera skráðir á heilsugæslustöð eða hjá sjálfstætt starfandi heimilislækni. Í lok nóvember í fyrra voru rúmlega 21 þúsund manns á höfuðborgarsvæðinu ekki með heilsugæslustöð en í byrjun þessa árs voru allir sjúkratryggðir íbúar á höfuðborgarsvæðinu, 205 þúsund manns, skráðir.

Ef einstaklingur ákveður að færa sig á milli stöðva flyst fjármagn sem greitt er með viðkomandi yfir á nýju stöðina. „Með þessu myndast hvati hjá heilsugæslustöðvum til að bjóða upp á betri þjónustu við skjólstæðinga sína,“ tekur Ingveldur fram.

Innt eftir því hvort hægt sé að merkja hvort einhverjar heilsugæslustöðvar séu vinsælli en aðrar segir Ingveldur að ekki sé hægt að sjá neitt slíkt út úr þeim gögnum sem Sjúkratryggingar hafi. „Það er auðvitað meiri breyting hjá stærri stöðvunum sem stýrist líklega mest af því að þær eru staðsettar í fjölmennum hverfum. Hlutfallsleg breyting á skráningu virðist vera svipuð milli stöðva.“

Nú eru 17 heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu og 12 sjálfstætt starfandi heimilislæknar. Tvær nýjar stöðvar verða opnaðar í sumar. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×