Golf

Fáið ykkur alvöru vinnu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Spieth gefur ekki hverjum sem er eiginhandaráritun.
Spieth gefur ekki hverjum sem er eiginhandaráritun. vísir/getty
Kylfingurinn Jordan Spieth gelti á hóp manna sem var með leiðindi við hann af því hann vildi ekki gefa þeim eiginhandaráritun.

Þarna voru á ferð menn sem hafa það að atvinnu að láta íþróttamenn skrifa á hina og þessa muni. Þeir eru síðan seldir fyrir talsverðar upphæðir.

Spieth er búinn að fá nóg af því að þessir menn séu að græða á árangri hans og annarra.

„Ég er ekki hrifinn af fólki sem reynir að græða á árangri annarra. Ég er alltaf til í að skrifa fyrir krakkana en ekki fyrir þessa menn,“ sagði Spieth pirraður.

„Liðið okkar fylgist með þessu og þessir menn mæta með fulla poka af dóti sem þeir ætla síðan að græða á þegar ég hef áritað dótið. Fáið ykkur alvöru vinnu í stað þess að græða á öðrum.“

Atvinnuáritanaeltararnir, það er nýyrði, reiddust þegar Spieth labbaði fram hjá þeim eftir æfingahring á Pebble Beach. Þeir fóru svo að rífa kjaft er Spieth áritaði fyrir nokkra krakka.

„Þeir voru að nota F-orðið og ég sagði þeim að passa sig í kringum börnin. Þeir héldu samt áfram að nota fúkyrði í minn garð. Þá snéri ég mér við og tjáði þeim að mér þætti þessi hegðun ekki í lagi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×