Gagnrýni

Fáguð og flott á sviði

Baldvin Þormóðsson skrifar
Tónleikar Banks

Tónlistarhátíðin Secret Solstice



Það fór ekki fram hjá neinum þegar gyðjan Jillian Banks tölti inn á sviðið á laugardagskvöldinu.

Hún hafði látið gesti hátíðarinnar bíða í 20 mínútur eftir sér en það var algjörlega þess virði. Þegar tónlistin loks byrjar þá bilast allir áhorfendurnir en á sviðinu er aðeins gítarleikari og fleiri hljómsveitarmeðlimir, engin Banks. Nokkrar mínútur inn í lagið gengur hún á sviðið eins og sviðið sé sýningarpallur á tískuvikunni í París.

Tónleikarnir voru eiginlega eins og samblanda af tískusýningu og tónleikum. Banks hreyfir sig á svo fágaðan hátt og sviðsframkoma hennar var sú allra besta af tónlistarmönnum hátíðarinnar. Hún lítur í augu nánast hvers og eins áhorfanda og fær alla með sér þegar hún vill að áhorfendurnir öskri eða haldi kjafti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×