Innlent

Fagráð um kynferðisofbeldi gegn fötluðu fólki

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Kristinn segir að fréttir af ofbeldi gegn fötluðu fólki hér á landi séu margar.
Kristinn segir að fréttir af ofbeldi gegn fötluðu fólki hér á landi séu margar. mynd/365
Blindrafélagið hefur komið á fót fagráði og vonast til eftir samstarfi við önnur samtök fatlaðs fólks. Tæpt ár er frá því að hugmyndin að ráðinu kom upp.

„Umræðuna má annars vegar rekja til umræðu á norrænu vettvangi blindrasamtaka og hins vegar til málsins með Karl Vigni Þorsteinsson en hann hafði á sínum tíma komið að starfsemi innan Blindrafélagsins,“ segir Kristinn Halldór Einarsson, formaður Blindrafélagsins.

Í kjölfarið á því máli hafi þau farið að skoða hvernig taka ætti á málum ef ásakanir um kynferðisofbeldi eða annað ofbeldi yrðu bornar upp á vettvangi samtakanna. Sú vinna leiddi þau til þess að búa til eitt sameiginlegt fagráð sem snýr að því aðstoða fatlað fólk sem hefur orðið fyrir ofbeldi og styður það.

Í desember óskaði Blindrafélagið eftir samstarfi við Félaga heyrnarlausra, Geðhjálp, Landssamtökin Þroskahjálp og Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra. Jafnframt hefur verið óskað eftir samstarfi við Stígamót. En Stígamót eru að fara af stað með tilraunaverkefni til eins árs um fræðslu á ofbeldi til fatlaðra.

Fréttir af ofbeldi gegn fötluðu fólki margar

Kristinn segir að fréttir af ofbeldi gegn fötluðu fólki hér á landi séu margar. Í skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um aðstæður fólks með fötlun séu dregnar fram sláandi upplýsingar sem sýna að fatlað fólk býr við mun meiri hættu á því að verða beitt ofbeldi en aðrir.

Eins og komið hefur fram á Vísi taka þær Guðrún Jónsdóttir, starfskona Stígamóta, Embla Guðrúnar- og Ágústsdóttir, stjórnarformaður NPA miðstöðvarinnar og Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Rannsóknarsetri í fötlunarfræðum, undir það.

Kristinn segir að það hafi ekki verið fréttaflutningurinn af málinu þar sem karlmaður á níræðisaldri var sakaður um að beita þroskaskerta stjúpdóttur sína kynferðislegu ofbeldi í 40 ár sem hafi verið kveikjan af þessu. En fréttaflutningurinn í gær af því að málið gegn manninum hafi verið fellt niður hafi orðið til þess að þau vildu koma þessu að í fréttum. „Svo að fólki sé ljóst að við og fleiri samtöku séum að vinna að þessum málum,“ segir Kristinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×