Lífið

Fagnaði afmælinu með ríkasta manni heims

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Carlos og Sophia.
Carlos og Sophia. vísir/getty
Leikkonan Sophia Loren fagnaði áttræðisafmæli sínu í Museo Soumaya í Mexíkó á laugardaginn.

Fjölmargar stjörnur sóttu afmælið, þar á meðal leikararnir Forest Whitaker, Jon Voight og Andy Garcia. 

Auðjöfurinn Carlos Slim Helú hélt afmælið en hann er ríkasti maður heims og góður vinur leikkonunnar.

Carlos var ríkasti maður heims á árunum 2010 til 2013 en þá tók Bill Gates nafnbótina af honum. Carlos náði henni hins vegar aftur í júlí á þessu ári en hann er þekktur sem Warren Buffett Mexíkó.

Jon Voight, Andy Garcia, Sophia og Forest Whitaker.
Afmælisbarn fær sér afmælisköku.
Ánægð með daginn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×