Menning

Fagna útgáfu bókar í lokahófi Bismút

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Bismút Sýningu Daníels Björnssonar lýkur í Kling & Bang á morgun.
Bismút Sýningu Daníels Björnssonar lýkur í Kling & Bang á morgun. Mynd/ Kling & Bang
Lokahóf sýningar Daníels Björnssonar, Bismút, verður haldið í dag klukkan 15 í Kling & Bang galleríi. Einnig verður fagnað útgáfu á ritinu Hugleiðingar um verk Daníels Björnssonar og annað, sem byggt er á viðtölum sem Ingibjörg Sigurjónsdóttir tók við Daníel í tilefni sýningarinnar.



Sýning Daníels Björnssonar, Bismút, hefur staðið yfir síðan 8. nóvember. Daníel teiknar upp sýningarrýmið með lituðu ljósi og stillir þar upp nýjum skúlptúrum úr brunni sínum. Verkin snerta á umbreytingum, enda dregur sýningin nafn sitt af frumefninu bismút sem er þungur, brothættur, hvítkristallaður málmur sem umbreytist við hitun í tilkomumikinn kristal í öllum regnbogans litum. Verk Daníels draga fram hið stöðuga ferli sem núningur tímans við efni, anda og aðstæður er, að því er fram kemur í tilkynningu frá galleríinu.



Sýningin stendur til 21. desember. Opið er í Kling & Bang fimmtudaga til sunnudaga frá klukkan 14 til 18 og er aðgangur ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×