Tónlist

Fagna tíu ára afmæli Systematic Records

Marc Romboy er þekktur tónlistarmaður og plötusnúður.
Marc Romboy er þekktur tónlistarmaður og plötusnúður.
Það verður mikið fjör á skemmtistaðnum Paloma í Naustinni í kvöld þar sem 10 ára afmælispartý Systematic Recordings verður haldið. Sunnudagsklúbburinn heldur veisluna fyrir Systematic og mun stofnandi útgáfunnar, Marc Romboy, meðal annars koma fram.

„Hinn þýska Romboy þarf vart að kynna fyrir dansþyrstum Íslendingum, enda hefur þessi þekkti tónlistarmaður og plötusnúður heimsótt klakann nokkrum sinnum áður og hefur svo sannarlega unnið sér inn hinn vafasama titil Íslandsvinur með miklum sóma,“ kemur fram í tilkynningu frá Sunnudagsklúbbnum.

Systematic Recordings útgáfan hefur verið ötul frá stofnun.
Með Marc kemur einnig fram vinur hans, tónlistarmaðurinn Namito, sem gefið hefur út á Systematic sem og fleiri útgáfum eins og Kompakt og Yoshitoshi. Þess má til gamans geta að hann gerði frábæra endurhljóðblöndun af laginu Hold you með GusGus.

Einnig koma fram í kvöld Sunnudagsklúbbssnúðarnir Frimann, Bensol, Intro Beats og að sjálfsögðu Formaður Sunnudagsklúbbsins.

Marc Romboy hefur verið starfandi í neðanjarðarteknó- og house-senunni í yfir tuttugu ár og gefið út hjá ekki ómerkari útgáfum en Planet E og 20/20 Vision o.fl. í gegnum tíðina. Árið 2004 stofnaði hann sína eigin útgáfu, Systematic Recordings, og hefur útgáfan verið ötul frá stofnun.

Listamenn á snærum útgáfunnar eru til dæmis Stephan Bodzin, Blake Baxter, Booka Shade og að sjálfsögðu Marc sjálfur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×