Lífið

Fagna sumrinu fáklæddar á kafi í snjó

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þær Leonie Winkler, Michaela Heidecke, Katharina og Alena Voigtsem fara allar á kostum.
Þær Leonie Winkler, Michaela Heidecke, Katharina og Alena Voigtsem fara allar á kostum.
Katharina K'eudell, starfsmaður Pólarhesta, hefur sett inn stórskemmtilegt myndband á samskiptamiðilinn Facebook, en þar má sjá hvernig hægt er að fagna sumrinu hér á landi.

Þær Leonie Winkler, Michaela Heidecke, Katharina og Alena Voigtsem fara með aðalhlutverkin í myndbandinu og fara þær allar á kostum. Allar eru þær frá Þýskalandi og vinna hjá hestaleigunni Pólarhestum.

Í myndbandinu skella þær sér léttklæddar í sólbað í snjóskafli. Einnig reyna þær að hjóla um svæðið í miklum snjó. Myndbandið er hið skemmtilegasta og má sjá það hér að neðan. 

this is how we celebrate summer in iceland#polarhestar

Posted by Katharina K'eudell on 5. maí 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×