Menning

Fagna hundrað ára kosningaafmæli danskra og íslenskra kvenna í dag

Guðrún Ansnes skrifar
Allir eru velkomnir í Norræna húsið klukkan 17.00 í dag
Allir eru velkomnir í Norræna húsið klukkan 17.00 í dag Vísir/GVA
Í dag eru hundrað ár síðan konur fengu kosningarétt á Íslandi, og sömuleiðis í Danmörku.

Af því tilefni ætla konur og karlar að fagna saman með sérlegum fundi í Norræna húsinu í dag. „Þarna verður farið yfir söguna, og fagbundin umfjöllun í bland við umræður verður í hávegum höfð,“ segir Charlotte Bøving, leikkona og leikstjóri, en hún gegnir hlutverki fundarstjóra.

Munu Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar í Reykjavík, dr. Auður Styrkársdóttir, forstöðukona Kvennasögusafns Íslands, Leonora Christina Skov, danskur rithöfundur, og Gerður Kristný Guðjónsdóttir flytja erindi, sem svo verður fylgt eftir með umræðum. „Það verður gaman að heyra muninn á dönsku samfélagi og íslensku, en Skov er til dæmis þekkt í Danmörku fyrir að vera beitt í ádeilu sinni á samfélagið og er mikill þjóðfélagsrýnir,“ útskýrir Charlotte, sem sjálf er dönsk að uppruna en hefur búið á Íslandi í fjöldamörg ár.

„Að loknum erindum verða umræður í um þrjátíu mínútur, þar sem ég opna fyrir umræðuna og ætla að spyrja meðal annars út í þá staðreynd að stúlkur séu oftar en ekki með háar einkunnir í skóla, iðulega dúxar, og hvernig það skilar sér til dæmis í hlutfall kvenna í stjórnunarstöðum, hvernig komið er fram við kvenlíkamann og fleira sem brýnt er í femínískri umræðu í dag,“ segir Charlotte.

Segir Charlotte mikið hægt að segja til um samfélag þar sem konur geta grínast og skotið á sjálfar sig og karlana. Það sé góðs viti. „Þó svo að launin skipti miklu máli þá verðum við líka að horfa á kjarnann, húmorinn, líkamann og menntunina,“ segir hún að lokum.

Er fundurinn samstarfsverkefni upplýsingaskrifstofunnar Norðurlönd í fókus, danska sendiráðsins á Íslandi og Reykjavíkurborgar.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×