Tíska og hönnun

Fagna eins árs afmæli Suit við Skólavörðustíg

Eigendur Suit eru þau Guðmundur Hallgrímsson og Ása Ninna Pétursdóttir.
Eigendur Suit eru þau Guðmundur Hallgrímsson og Ása Ninna Pétursdóttir.
Eins árs afmælisteiti verslunarinnar Suit við Skólavörðustíg verður haldið klukkan 20 í kvöld. 

Verslunin opnaði í fyrrahaust og vakti strax mikla athygli fyrir glæsilega endurgerð á húsnæðinu við Skólavörðustíg 6, þar sem áður var rekinn spilatækjasalurinn Gullnáman.

Guðmundur Hallgrímsson og Ása Ninna Pétursdóttir reka Suit en þau eiga einnig verslunina GK í Bankastræti.

Mikið verður um dýrðir í versluninni og mæta eigendur Suit-merkisins frá Danmörku til landsins til að taka þátt í fögnuðinum. Bartónar hefja einnig upp raust sína, gefnir verða glaðningar og skópör frá Shoe the Bear í happdrætti.

Í tilefni afmælisins býður Suit viðskiptavinum sínum síðan upp á 20% afslátt fram á mánudag.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×