Skoðun

Faglegri umfjöllun óskast!

Helga Ingólfsdóttir skrifar
Tilefni skrifa minna hér í þetta blað nú um hásumar þegar sólin skín er að bregðast við skrifum Árna Guðmundsonar um æskulýðsmál í Hafnarfirði. Tilefni skrifa Árna virðist eingöngu vera að gagnrýna þá breytingu að um mitt ár var ákveðið að færa yfirstjórn félagsmiðstöðva og frístundaheimila frá fjölskyldusviði til fræðslusviðs í samræmi við tillögur rekstrarráðgjafa um einfaldari og skilvirkari stjórnsýslu hjá Hafnarfjarðarbæ. Þessi skipulagsbreyting er þannig til komin að betur sé hægt að sinna þessum málaflokki og bæta þjónustu við börn og ungmenni í frítíma þeirra, það er kjarni málsins.

Samhljómur er með þessari breytingu og tillögum starfshóps sem skipaður er fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn ásamt starfsmönnum, en starfshópurinn hóf störf í lok síðasta árs og skilaði af sér tillögum varðandi breytingar á rekstri frístundaheimila á vormánuðum sem kynntar voru á opnum fundi í Lækjarskóla.

Tillögur starfshópsins, sem undirrituð hefur veitt formennsku, snúa fyrst og fremst að því að efla faglegt starf frístundaheimila og leita leiða til þess að samþætta og stytta vinnutíma barna og í því skyni hefur verið leitað eftir samstarfi við íþrótta- og frístundafélögin í bænum og þeim gefinn kostur á að reka frístundaheimili samkvæmt þjónustusamningi. Enn fremur var það tillaga starfshóps að gefa skólastjórnendum kost á að reka frístundaheimili og þannig hugsanlega ná að samþætta skólastarf og starfsemi frístundaheimila betur en verið hefur undanfarin ár, enda ljóst að töluverðir agnúar hafa verið á því fyrirkomulagi sem unnið hefur verið eftir undanfarin ár.

Árna virðist ekki hugnast að yfirstjórn frístundamála verði staðsett á fræðslusviði en færir engin rök fyrir þeirri skoðun sinni og setur í grein sinni gæsalappir á starfsheiti fagstjóra frístundamála, sem má túlka á þann hátt að hann gefi ekki mikið fyrir þann titil sem vekur furðu mína í ljósi reynslu hans af æskulýðsmálum almennt.

Fagstjóri frístundaheimila mun hafa yfirumsjón með faglegu starfi frístundaheimila í samræmi við samþykktir bæjarins og enn fremur vinna að áframhaldandi þróun. Það má nefna að þetta er svipað fyrirkomulag og er hjá Reykjavíkurborg þar sem frístundaheimili eru staðsett á skóla- og frístundasviði.

Það eru spennandi verkefni fram undan við að efla og bæta þjónustu frístundaheimila til samræmis við óskir foreldra um bætt innra starf og samþættingu við íþrótta- og tómstundastarf og það ætlum við að gera.




Skoðun

Sjá meira


×