Færri ráðherrar Framsóknar 22. maí 2013 06:00 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Mynd / Stefán
Sjálfstæðisflokkurinn fær fimm ráðherra og Framsóknarflokkurinn fjóra í nýrri ríkisstjórn. Ekki verður skipaður sérstakur umhverfisráðherra. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verður forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra. Sjálfstæðisflokkur fær forseta Alþingis. Stjórnarsamstarfið var samþykkt samhljóða á fundum flokksstjórnar Sjálfstæðisflokksins og miðstjórnar Framsóknarflokksins í gærkvöldi. Verkefnum velferðarráðuneytisins verður skipt á milli félagsmálaráðherra og heilbrigðisráðherra. Þá verður verkefnum atvinnuvegaráðuneytisins skipt á milli sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem einnig fer með orkumál og málefni ferðaþjónustunnar. Sigmundur Davíð segir að verkaskipting ráðuneytanna sé ekki endanleg. Vinna muni fara í gang við uppskiptingu eða sameiningu þeirra. Ráðherratalan geti því breyst. „Ég á frekar von á því, þegar allt er um garð gengið og komið endanlegt skipulag á þetta, að við verðum með fimm ráðherra þegar búið er að fara í gegnum þessa vinnu sameiningar eða uppskipti.“ Umhverfismálin verða fyrsta kastið undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti. Bjarni segir, varðandi ráðherraskiptingu, að hann hafi gert ráð fyrir því að Framsóknarflokkurinn skipaði fjóra ráðherra í þær stöður sem hann fékk í hlut sinn. Hann var ánægður með viðtökurnar á fundinum í gær. „Við kynnum stefnuyfirlýsinguna fyrir hádegi á morgun [í dag]. Síðan nota ég daginn til að hitta þá þingmenn sem ég á eftir að ræða við og legg mína tillögu fram við þingflokkinn um kvöld.“ Þingflokkar stjórnarflokkanna funda báðir í kvöld og líklegt er að fyrsti ríkisráðsfundur nýrrar ríkisstjórnar verði á morgun. Heimildir Fréttablaðsins herma að mikil áhersla sé lögð á atvinnuuppbyggingu í stjórnarsáttmálanum, en ekki sé kveðið á um einstök stórverkefni. Þá mun línu flokkanna úr kosningabaráttunni fylgt varðandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, að gert verði hlé á þeim og þeim ekki haldið áfram fyrr en að undangenginni samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ekki mun þó kveðið á um hvenær slík atkvæðagreiðsla skuli fara fram.- kóp
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira