Innlent

Færri fóru með Herjólfi en höfðu keypt miða

Frá Landeyjahöfn í kvöld.
Frá Landeyjahöfn í kvöld. Vísir/Kolbeinn
Í tveimur ferðum Herjólfs á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja í dag fóru um hundrað færri en höfðu keypt miða. Farnar voru margar ferðir, en Björn Guðlaugsson einn þeirra sem sinnir gæslu við höfnina segir allt hafa gengið vel í dag.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Björn sinnir þessu hlutverki og sagði hann það vera skemmtilegt að sjá í hve miklu stuði þjóðhátíðargestir væru.

Herjólfur er nú í síðustu ferð dagsins, en margir fóru til Eyja í dag og stefna á Húkkaraballið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×