Færeyski bjórrisinn svarar Ölgerðinni fullum hálsi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. ágúst 2014 16:35 Annika Waag og Einar Waag. Mynd/Bjor.fo „
Málatilbúnaður þeirra stendur á brauðfótum,“ segir Einar Waag hjá Föroya bjór í samtali við Vísi. Færeyska fyrirtækið hefur svarað bréfi Andra Þórs Guðmundssonar, forstjóra Ölgerðarinnar, þar sem málsókn er hótað á hendur Föroya bjór taki það ekki bjór sinn, Föroya gull, úr hillum ríkisins á Íslandi hið snarasta. Forsvarsmenn Ölgerðarinnar vilja færeyska gullið úr sölu á íslenskum markaði. Bera þeir fyrir sig að Gull sé skrásett vörumerki á Íslandi frá árinu 2011. „Bréfið var líka sent á Ívar (J. Arndal), forstjóra ÁTVR,“ segir Einar sem á þó ekki von á því að ÁTVR verði við beiðni Ölgerðarinnar. „Þá yrðum við af miklum tekjum. Þá gætum við þurft að sækja mál gegn Ölgerðinni og ÁTVR.“Færeyskir miðlar greindu frá málinu í gær en það hefur vakið töluverða athygli þar í landi. Markaðshlutdeild Föroya bjórs er um 75 prósent í Færeyjum að sögn Einars. Þeirra helsti samkeppnisaðili sé Carlsberg en svo sé íslenskur bjór á borð við Bola og Gull.Mynd/WikipediaFæreyski bruggaður níu árum lengur en sá íslenski Einar bendir á að skrýtið sé að Ölgerðin bregðist svona við enda hafi færeyska gullið verið til sölu hér á landi í tuttugu ár. Þar með talin eru undanfarin þrjú ár síðan Gull varð skrásett vörumerki. Auk þess hafi færeyski bjórinn verið bruggaður frá árinu 1980 en Egils Gull ekki komið á markað fyrr en árið 1989. Bjórbanninu í Færeyjum lauk níu árum fyrr en á Íslandi. „Við fögnum 125 ára afmæli fyrirtækisins í fyrra,“ segir Einar en Föroya bjór var stofnað árið 1888. Egils Gull var stofnað 1913. „Við höfum því verið á markaði aldarfjórðungi lengur.“ Hann gagnrýnir orð Einars í DV í gær þar sem forstjórinn sagðist vilja setjast niður með forráðamönnum færeyska fyrirtækisins og ræða málin. „Okkur finnst bréf með hótun um málsókn ekki beint friðsamlegt boð á fund.“Föroya bjór.Mynd/Bjor.foBúnir að svara bréfinu Lögmaður færeyska fyrirtækisins í Danmörku, sem sérhæfður er í einkarétti, hefur svarað Ölgerðinni. Einar segir að þar hafi einfaldlega verið bent á þá staðreynd að ekki eigi að vera hægt að skrásetja jafn algeng orð og gull. Þá hafi Ölgerðin aldrei tilkynnt sér að um skrásett vörumerki væri að ræða. Þá hafi bjórinn verið seldur án nokkurra athugasemda í þrjú ár á Íslandi og í tæp tuttugu ár þar á undan. Einar segir að Andri Þór og félagar hafi verið vel meðvitaðir um tilvist færeyska bjórsins. Svo áhugasamir hafi forsvarsmenn Ölgerðarinnar verið um færeyska fyrirtækið að það kíkti í heimsókn á meðan allt lék í lyndi á Íslandi 2007. „Andri veit allt um vörurnar okkar. Hann kíkti hingað í góðærinu og vildi kaupa fyrirtækið,“ segir Einar. Ekki hefur náðst í Andra Þór Guðmundsson, forstjóra Ölgerðarinnar, í dag vegna málsins.
Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira