Færeysk náttúra, veðrið, fuglarnir og húmorinn

Fréttablaðið Menning 09. febrúar 2012 22:00
Hugmyndirnar kveðst Mikkalína fá úr hinni færeysku náttúru, veðrinu, fuglunum og glerinu sjálfu.
Hugmyndirnar kveðst Mikkalína fá úr hinni færeysku náttúru, veðrinu, fuglunum og glerinu sjálfu.
Færeyska listakonan Mikkalína Norðberg býr til litskrúðug glerverk sem vekja gleði. Hún er á leið til Íslands um næstu helgi á Vetrarhátíð í höfuðborginni.

„Í draumum mínum hef ég skapað litaglöð glerverk frá því ég var unglingur en í veruleikanum eru það bara fjögur ár, fjögur yndisleg og ævintýraleg ár. Glerið mitt hefur fengið góðar viðtökur frá fyrsta degi og það hefur gefið mér möguleika á að gera listsköpunina að fullu starfi og þróa bæði tækni og hugmyndir," segir hin færeyska Mikkalína Norðberg glerlistakona, sem er fædd og búsett í höfuðstað eyjanna, Þórshöfn.

Hugmyndirnar kveðst Mikkalína fá úr hinni færeysku náttúru, veðrinu, fuglunum og glerinu sjálfu. „Allt sem gerist í kringum mig hefur áhrif og svo bæti ég húmor og litum við. Oftast fæ ég hugmynd að næsta verki áður en ég hef lokið því sem ég er með." Mikkalína hefur sýnt verk sína á Art Copenhagen í samvinnu við Listagluggann í Þórshöfn, á árlegri Ólafsvökusýningu í Listaskálanum í Þórshöfn og í Gallerí Uggerby í Lönstrup í Danmörku.

„Ég tilheyri hópi fimm kjarnorkukvenna sem kalla sig Fimm feitar flugur og heldur árlega sölusýningu. Stór verk sel ég í verkstæðinu mínu í Þórshöfn og Gallerí Uggerby í Lönstrup, auk þess að taka við pöntunum gegnum heimasíðuna mikkalina.com en smærri hlutir fást í Norræna húsinu í Þórshöfn og flugstöðinni í Vogi."


Mikkalína Norðberg.
Mikkalína Norðberg.
Mikkalína kemur í fyrsta sinn til Íslands nú um helgina í skemmtiferð með vinum sínum.

„Faðir minn var sjómaður við Ísland og hrósaði landi og þjóð í hástert. Ég veit líka að mikið er að gerast á Íslandi í hönnun og listum og það eykur áhuga minn á að heimsækja landið, aka og ganga, kíkja, þefa, smakka, hreyfa við – og vonandi smitast af kraftinum sem þar er að finna. Við höfum lokkað með okkur nokkra vini frá Kaupmannahöfn. Í stað þess að heimsækja hvert annað þá höfum við öll sett stefnuna á Ísland. Það skal verða gaman, hvernig sem veðrið verður. Ég elska allar árstíðir og Ísland er örugglega spennandi að vetri til fyrir manneskju eins og mig."

gun@frettabladid.is

Fleiri fréttir - Menning

Menning 21. maí. 2012 12:54

Gleðikabarett með samtímatvisti

"Við erum eiginlega að búa til tónleika og reynum um leið að varpa ljósi á sviðsframkomuna...  

Meira
Menning 18. maí. 2012 13:00

Facebook-samskipti í raunheimi

Halldóra Rut Baldursdóttir og Katrín Halldóra Sigurðardóttir, leiklistarnemar við Listahás...  

Meira
Menning 18. maí. 2012 12:30

Lét gamlan draum rætast

Aldís Snorradóttir rekur Gallerí Þoku sem staðsett er í kjallara Hríms hönnunarhúss á Laug...  

Meira
Menning 17. maí. 2012 18:00

Söngleikur loks á Íslandi

Dansflokkurinn Shalala með Ernu Ómarsdóttur í fararbroddi og hljómsveitirnar Lazyblood og ...  

Meira
Menning 16. maí. 2012 13:00

Hjólað í sínu fínasta pússi

Alexander Schepsky og Jón Gunnar Tynes Ólasson segja að það vanti almennilega hjólamenning...  

Meira
Menning 14. maí. 2012 15:00

Með fyrsta skólaverkefnið sitt á Cannes-hátíðina

Jasmin Rexhepi, nemandi við Kvikmyndaskóla Íslands, er á leið með fyrsta skólaverkefni sit...  

Meira
Menning 14. maí. 2012 08:00

Á fimm þúsund aðdáendur

Myndasagnahöfundurinn Vignir Þór Þórhallsson, eða Flotti-Comics eins og hann kallar sig, e...  

Meira
Menning 12. maí. 2012 16:52

Harpa reis á hárréttum tíma

Áhrif tónlistarhússins Hörpu eru mikil og varanleg, segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir tón...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Menning / Færeysk náttúra, veðrið, fuglarnir og húmorinn