Handbolti

Færeyjar meistarar þróunarlanda í handbolta

Anton Ingi Leifsson skrifar
Frændur okkar í Færeyjum urðu meistarar um helgina.
Frændur okkar í Færeyjum urðu meistarar um helgina. vísir/getty
Færeyingar urðu meistarar þróunarlanda í handbolta í dag eftir þriggja marka sigur, 27-24, á Lettum í úrslitaleik mótsins, en mótið fór fram í Kósovó.

Frændþjóð okkar, Færeyingar, kom öllum á óvart og urðu þeir fyrstu meistararnir í þessari tilraun evrópska handknattleikssambandsins.

Gestgjafarnir í Kósóvó lentu í þriðja sæti eftir sigur á Úrúgvæ í leiknum um bronsið, en lokatölur urðu 28-16. Eistland hirti svo fimmta sætið eftir fjögurra marka sigur á Moldóvíu, 37-33.

Trondur Kragesteen var valinn leikmaður mótsins, en hann spilaði með meisturunum í Færeyjum. Dimitrov Svetlin var markahæsti leikmaður mótsins, en hann skoraði 64 mörk. Hér fyrir neðan má sjá alla lokaniðurstöðina.

Lokaniðurstaðan:

1. Færeyjar

2. Lettland

3. Kósóvó

4. Úrúgvæ

5. Eistland

6. Móldóvía

7. Kamerún

8. Malat

9. Bretland

10. Kína

11. Búlgaría

12. Ástralía

13. Írland

14. Albanía

15. Andorra

16. Armenía




Fleiri fréttir

Sjá meira


×