Viðskipti erlent

Færeyingar græða á Rússaviðskiptum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Færeyingar mokgræða á því að standa utan við viðskiptabann gagnvart Rússlandi og hafa Rússar á skömmum tíma vaxið upp í að verða stærsti kaupandi færeyskra afurða. 

Þegar Bandaríkin og Evrópusambandið ákváðu að beita Rússa viðskiptaþvingunum vegna Úkraínudeilunnar völdu Færeyingar að standa utan við refsiaðgerðirnar. Fyrir færeyskan efnahag virðist það hafa verið einkar hagfelld ákvörðun miðað við lýsingar danskra fjölmiðla, sem strax í fyrra fóru að segja fréttir af því að Færeyjar möluðu gull vegna viðskiptabannsins.

Þetta kemur sér einkar vel fyrir laxeldið, en eldislax er orðinn mikilvægasta útflutningsafurð Færeyja, enda virðast færeyskir firðir og sundin milli eyjanna henta vel til fiskeldis. Á skömmum tíma hefur Rússlands vaxið upp á að verði stærsti kaupandi færeyskra sjávarafurða, og ekki bara á eldislaxi, heldur einng á þorski, síld og makríl.

Takmarkað framboð fiskafurða á Rússlandsmarkaði vegna viðskiptabannsins veldur því jafnframt að Færeyingar fá hátt verð fyrir afurðir sínar þar.

Útflutningur Færeyinga til Rússlands á síðasta ári er talinn hafa vaxið upp í 40 milljarða íslenskra króna en á sama tíma nam útflutningur þeirra til ríkja Evrópusambandsins um 30 milljörðum króna.

Svo vel kunna Rússar að meta vini sína Færeyinga að þeir vilja nú læra af reynslu þeirra af fiskeldi og var sendinefnd frá Færeyjum á dögunum í Múrmansk til að ræða um samstarf um að byggja þar upp fiskeldi, samkvæmt frétt The Independent Barentsobserver.


Tengdar fréttir

Samherji greiddi 6 milljarða fyrir eigur Faroe Seafood

Færeyskir fjölmiðlar greina frá því að Samherji og dótturfélagið Framherji hafi greitt sem svarar tæpum 6 milljörðum króna fyrir eignir þrotabús Faroe Seafood í síðasta mánuði.

Skálað fyrir bestu vinum Íslendinga

Tveir íslenskir ráðherrar gerðu sér sérstaka ferð til Færeyja í vikunni til að þakka Færeyingum þann vinarhug sem þeir sýndu Íslendingum eftir hrunið. Ritað var undir viljayfirlýsingu í Þórshöfn um að efla samstarf frændþjóðanna, einkum á sviði orkumála og nýsköpunar. Þau Katrín Júlíusdóttir og Steingrímur J. Sigfússon, ráðherrar fjármála- og atvinnuvega, fengu hlýjar móttökur af hálfu Færeyinga, sem sýndu þeim nokkrar helstu perlur eyjanna, eins og Sörvogsfjörð og þorpið Böur en einnig öflug atvinnufyrirtæki eins og laxeldisstöðvar, en eldislax er orðinn verðmætasta útflutningsvara Færeyja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×