Matur

Færa út kvíarnar

Eigendur suZushii, Sigurður Karl Guðgeirsson og Ásta Sveinsdóttir, ásamt dóttur sinni Önnu Lovísu.
Eigendur suZushii, Sigurður Karl Guðgeirsson og Ásta Sveinsdóttir, ásamt dóttur sinni Önnu Lovísu. Fréttablaðið/vilhelm
Veitingastaðurinn suZushii opnaði á efri hæð Iðu við Lækjargötu á fimmtudagskvöld. Þetta er annar suZushii-staðurinn sem opnar hér á landi en sá fyrri hefur verið starfræktur í Kringlunni í á fjórða ár við góðar undirtektir.

Eigendur beggja staðanna eru Sigurður Karl Guðgeirsson og Ásta Sveinsdóttir. Þau reka einnig veitingastaðinn Roadhouse við Snorrabraut. Sigurður Karl er menntaður matreiðslumaður sem hefur sérhæft sig í gerð sushi undanfarin ár. Hann lærði í tvö ár undir handleiðslu japansks meistara að nafni Isao Suzuki. Sigurður er með samtals um tólf ára reynslu að baki í sushi-gerð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×