Bíó og sjónvarp

Fækkar ekki fötum í myndinni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jada getur lítið sagt um hlutverkið.
Jada getur lítið sagt um hlutverkið. vísir/getty
Leikkonan Jada Pinkett Smith er búin að hreppa hlutverk í kvikmyndinni Magic Mike XXL, framhald myndarinnar Magic Mike sem var frumsýnd árið 2012.

„Það var karakter sem var skrifaður fyrir karlmann en var breytt í konu,“ segir Jada um hlutverkið í samtali við Queen Latifah.

Jada getur lítið meira tjáð sig um hlutverkið en hún þarf þó ekki að fækka fötum.

Channing Tatum, Matt Bomer, Joe Manganiello, Alex Pettyfer og Gabriel Iglesias snúa aftur í sín hlutverk en samkvæmt Hollywood Reporter fengu Amber Heard og Andie McDowell einnig hlutverk í framhaldsmyndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×