Lífið

Fækka fötum til að mótmæla staðalímyndum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tískuljósmyndarinn Victoria Janashivili hefur myndað margar af frægustu fyrirsætum heims en vill nú gefa út bók með myndum af konum í öllum stærðum og gerðum.

Victoria birtir nokkrar af myndunum úr bókinni á vef Cosmopolitan þar sem Denise Bidot og Marina Bulatkina sitja fyrir. Bókin heitir einfaldlega Curves og safnar Victoria fyrir henni á hópfjármögnunarsíðunni Kickstarter.

Með bókinni vill Victoria berjast gegn staðalímyndum.

„Samfélagið býr til staðalímyndir sem tengjast líkama kvenna þó meðal, bandarísk kona noti stærð númer 14,“ segir Victoria.

Það er ekki nýtt af nálinni að konur fækki fötum til að vekja athygli á þessum staðalímyndum en skemmst er frá því að minnast þegar systurnar Dóra og Björg Þórhallsdætur tóku upp á svipuðu í Noregi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×