Fæðingartíðni í Danmörku sú lægsta í aldarfjórðung

Vísir Erlent 10. febrúar 2012 06:51
Fæðingartíðni í Danmörku sú lægsta í aldarfjórðung
Fæðingartíðnin í Danmörku þessa dagana er sú lægsta undanfarin aldarfjórðung. Á móti hefur fjöldi innflytjenda aldrei verið meiri.

Í nýjum tölum frá hagstofu Danmerkur kemur fram að á fjórða ársfjórðungi síðasta árs fæddust 13.800 börn í landinu en þessi fjöldi hefur ekki verið minni á einum ársfjórðungi síðan árið 1988. Þar að auki fækkaði fæðingum um 9% miðað við sama ársfjórðung árið áður.

Í umfjöllun Berlingske Tidende um málið kemur fram að ástæðu þessa megi rekja til þess að árin 1979 og fram til 1988 var fæðingatíðnin í Danmörku óvenjulág en á þessu tímabili fæddust aðeins 60.000 börn að meðaltali á ári. Þessi fámenna kynslóð gefur síðan af sér færri börn núna.

Á móti kemur að rétt tæpir 70.000 nýir innflytjendur voru skráðir í Danmörku á síðasta ári sem var met og ríflega 1.000 einstaklingum fleira en á árinu á undan. Mikill meirihluti innflytjendanna kom frá vestrænum ríkjum.

Fram kemur að ríflega 60.000 Tyrkir, eða fólk af tyrkneskum uppruna, eru nú búsettir í Danmörku en fjöldinn samvarar 1,1 prósenti af heildaríbúafjölda landsins.

Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 24. maí. 2012 15:56

Fellibylurinn Bud færist nær Mexíkó

Fellibylurinn Bud færist nú nær ströndum Mexíkó en hann er fyrsti fellibylur ársins á Kyrr...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 11:59

Nektarmynd af forsetanum harðlega gagnrýnd

Afríska þjóðarráðið, stærsti stjórnmálaflokkur Suður Afríku og flokkur forsetans Jakobs Zu...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 10:28

Neitaði að fljúga með kvenkyns flugstjóra

Karlmanni var vísað út úr flugvél á vegum brasilíska flugfélagsins Trip Airlines eftir að ...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 08:15

Dönsk sveitarfélög banna reykingar í vinnunni

Starfsmenn hins opinbera í Danmörku sem reykja eiga nú undir högg að sækja. Fjögur sveitar...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 03:13

Dæmdur í langa fangelsisvist

Shakil Afridi, læknir i Pakistan, hefur hlotið þungan fangelsisdóm og fésekt að auki fyrir...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 12:02

Plastpokar bannaðir í Los Angeles

Borgarstjórn Los Angeles borgar hefur ákveðið að banna alfarið notkun plastpoka í verslunu...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 11:55

Ólympíuleikar 2020: Þrjár borgir koma til greina

Þrjár borgir eru eftir í baráttunni um að fá að halda Ólympíuleikana árið 2020. Ekki er rá...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 08:06

Góð þátttaka í Egyptalandi

Forsetakosningarnar í Egyptalandi fara nú fram annan daginn í röð en tvo daga þarf til end...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 07:00

Langar biðraðir við kjörstaði

„Byltingin hefur breyst mikið. Bæði til hins betra og til hins verra,“ segir W...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 05:00

Biðin styttist hjá Assange

Hæstiréttur Bretlands tilkynnti í gær að á miðvikudaginn í næstu viku verði kveðinn upp úr...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 04:00

Líkjast persónuleika manna

Simpansar og órangútanar eru með persónuleika sem líkjast mjög persónuleika manna. Þetta e...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 03:30

Ræddu útgáfu evruskuldabréfa í Brussel

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna hittust á fundi í Brussel í gærkvöldi og ræddu fjárhagsva...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 23:55

Perez Hilton hrifinn af Of Monsters and Men

Bandaríski stjörnubloggarinnar Perez Hilton lýsti yfir aðdáun sinni á íslensku hljómsveiti...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 22:30

Fyrsta fallhlífarstökkið án fallhlífar heppnaðist

Breski ofurhuginn Gary Connery stökk úr þyrlu í 1.6 kílómetra hæð í dag — án fallhlí...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 11:33

Reyna að sanna tilvist snjómannsins ógurlega

Viðamikil rannsókn er hafin á því hvort snjómaðurinn ógurlegi sé í raun og veru til. Það e...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 10:59

Morðkvendi handtekið í eigin brúðkaupsveislu

Kona ein í Rússlandi var handtekin á dögunum grunuð um morð. Það sem gerir málið athyglisv...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 09:03

Ætlar í fallhlífarstökk - án fallhlífar

Breskur ofurhugi ætlar sér á spjöld sögunnar síðar í dag með því að stökkva út úr flugvél ...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 09:39

Rætt við Írani um kjarnorkumálin

Embættismenn frá sex ríkjum hefja í dag viðræður við Írani um hina umdeildu kjarnorkuáætlu...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 08:59

Bauð miða á Ólympíuleikana á svörtum markaði

Háttsettur starfsmaður Ólympíunefndarinnar í Úkraínu hefur verið leystur frá störfum eftir...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 08:56

Egyptar kjósa sér forseta

Egyptar ganga í dag að kjörborðinu og kjósa sér forseta. Þetta er í fyrsta sinn í fimmþús...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 07:30

Egyptar kjósa forseta

Fyrstu frjálsu forsetakosningarnar í Egyptalandi hefjast í dag. Strangtrúaðir íslamistar o...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 04:00

Um 75 milljón ungmenni eru án vinnu

Nær 13 prósent allra ungmenna í heiminum á aldrinum 15 til 23 ára eru án atvinnu eða alls ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Erlent / Fæðingartíðni í Danmörku sú lægsta í aldarfjórðung