Erlent

Fæddist með typpi á bakinu

Drengurinn fæddist með typpi á bakinu.
Drengurinn fæddist með typpi á bakinu. MYND/All Over

Kínverskir læknar reyna nú að átta sig á læknisfræðilegri ráðgátu eftir að kínverskur drengur fæddist með tvö typpi. Annað typpið er staðsett á baki drengsins.

Drengurinn sem fæddist í Henan héraðinu í Kína gekkst undir þriggja tíma aðgerð í lok maí til þess að koma í veg fyrir að hann þyrfti að lifa með auka typpi á bakinu.

Typpið kom læknum mjög á óvart en talið er að í upphafi hafi drengurinn átt að eiga tvíburabróður sem aldrei hafi myndast í legi móður sinnar.

Drengurinn var hinsvegar við góða heilsu að öðru leyti og ber sig vel eftir aðgerðina.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×