Menning

Faðirvor Jóns Ásgeirssonar sem lokalag

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Hin í hópnum eru öll meira lærð en ég, maður verður að velja sér gott fólk til að vinna með,“ segir Eygló, sem er önnur frá vinstri á myndinni.
"Hin í hópnum eru öll meira lærð en ég, maður verður að velja sér gott fólk til að vinna með,“ segir Eygló, sem er önnur frá vinstri á myndinni.
„Dagskráin verður í stíl við yfirskriftina á tónleikaröðinni Á ljúfum nótum. Okkur finnst svo hentugt að bjóða upp á hugljúft hádegi með innilegri tónlist á föstudegi,“ segir Eygló Rúnarsdóttir, félagi í Íslenska sönglistahópnum um hádegistónleikana í Laugarneskirkju á morgun, föstudag.

„Allt eru þetta trúarleg verk við biblíutexta, eða úr öðrum ritum, afar falleg lög og öll sungin án undirleiks,“ útskýrir Eygló. Hún segir tónlistina spanna þrjár aldir, því elsta tónskáldið, Antonio Lotti, sé fætt 1667 og það yngsta sé tuttugustu aldar tónskáldið Jón Ásgeirsson. „Við ákváðum að taka Faðirvorið hans Jóns sem lokalag á tónleikunum.“

Íslenski sönglistahópurinn hefur verið til frá haustinu 2010 er hann var stofnaður í tengslum við Dag íslenskrar tungu. Hann er skipaður menntuðu söngfólki. „Hin í hópnum eru öll meira lærð en ég, maður verður að velja sér gott fólk til að vinna með,“ segir Eygló glaðlega.

Tónleikarnir hefjast klukkan 12 og taka um hálfa klukkustund. Aðgangseyrir er 1.500 krónur og ekki er posi á staðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×