Lífið

Faðir Michael Jackson fékk heilablóðfall í Brasilíu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Joe Jackson.
Joe Jackson. vísir/twitter
Joe Jackson, faðir Michael Jackson, var lagður inn á sjúkrahús í Brasilíu eftir að hann hafði fengið heilablóðfall.

Í yfirlýsingu frá sjúkrahúsinu í Sao Paolo kemur fram að Jackson sé illa haldin og með óreglulegan hjartslátt.

Hann er staddur í Brasilíu til að fagna 87 ára afmæli sínu sem var á dögunum. Á Twittersíðu hans kemur fram þakklæti til þeirra sem hafa sent honum kveðjur í dag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×