Formúla 1

Faðir Lewis Hamilton sendir Bottas varnaðarorð

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Anthony Hamilton telur Bottas ekki geta staðist samanburð við Lewis Hamilton.
Anthony Hamilton telur Bottas ekki geta staðist samanburð við Lewis Hamilton. Vísir/Getty
Faðir Lewis Hamilton, Anthony, segir að sonur hans stefni nú á hápunkt ferilsins. Hann varar Bottas við og telur að ef Bottas er ekki reiðubúinn gæti samanburðurinn gert út af við feril Bottas.

Bottas kom til Mercedes þegar liðið var þvingað í uppstokkun vegna þess að heimsmeistari ökumanna, Nico Rosberg tilkynnti að hann væri hættur í Formúlu 1.

Bottas mun aka við hlið þrefalda heimsmeistarans, Hamilton.

„Hver sem ætlar að reyna að mæta Lewis þarf að hafa skipulagt feril sinn rétt því það gæti gert út um ferilinn að lenda í samanburði við Lewis,“ sagði Hamilton eldri í samtali við Sky Sports News.

„Persónulega held ég að þrátt fyrir að Lewis sé að þroskast og eldast þá eigi hann enn eftir að toppa. Svo Lewis verður gríðarlega öflugur í ár,“ bætti Hamilton eldri við.

Aðrir eru ekki eins vissir. Jolyon Palmer, ökumaður Renault telur að Bottas geti ógnað Hamilton:

„Valtteri mun standa sig vel og hann mun jafnvel ögra Lewis meira en flestir halda.“


Tengdar fréttir

Rosberg vildi fá Alonso til Mercedes

Þegar heimsmeistarinn í Formúlu 1, Nico Rosberg, hætti óvænt í lok síðasta tímabils var hann með sterkar skoðanir á því hver ætti að taka sætið hans hjá Mercedes.

Valtteri Bottas kynntur sem ökumaður Mercedes

Mercedes hefur staðfest að Valtteri Bottas mun aka Formúlu 1 bíl liðsins á komandi tímabili. Bottas verður þar með liðsfélagi þrefalda heimsmeistarans Lewis Hamilton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×