Sport

Faðir Gunnars: Allt á fullu að finna nýjan andstæðing

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nelson og Haraldur Dean Nelson í Stokkhólmi.
Gunnar Nelson og Haraldur Dean Nelson í Stokkhólmi. vísir/getty
„Þetta voru leiðinlegar fréttir og auðvitað bara leiðinlegt fyrir bæði Gunnar og John Hathaway,“ segir Haraldur Dean Nelson, faðir og umboðsmaður Gunnars Nelson, í samtali við Vísi.

Eins og greint var frá fyrr í kvöld er Bandaríkjamaðurinn Hathaway, sem átti að berjast við Gunnar á risa UFC-kvöldinu 11. júlí meiddur og hættur við.

„Hann varð fyrir meiðslum á æfingu og treystir sér ekki til að berjast. Þetta er stærsta bardagakvöld í sögu UFC og því hlýtur að hafa mikið gengið á hjá honum. Ég trúi ekki öðru,“ segir Haraldur.

Súpergæjar ekki einu sinni í aðalhlutanum

Hann segir allt vera á fullu hjá UFC í því að finna nýjan andstæðing fyrir Gunnar.

„Það er búið að bjóða einhverjum sem hafa sagt nei en það hlýtur að koma einhver öflugur. Þetta er svo stórt kvöld að það eru strákar sem berjast ekki í aðalhlutanum sem eru betri en Hathaway. Alveg súpergæjar. Það hlýtur því einhver að vilja færa sig upp,“ segir Haraldur.

„Ég var að tala við Joe Silva [einn af yfirmönnum UFC] í dag og það er allt á fullri ferð. Ég vonast til að eitthvað skýrist á næstu klukkutímunum. Málið er bara að flestir af þeim sem eru á topp 15 í veltivigtinni eru annað hvort meiddir eða komnir með bardaga.“

Undirbjó sig fyrir Hathaway

Gunnar hefur farið í gegnum þetta áður og margsinnis sagt að það skipti hann í raun ekki máli við hvern hann berst. Undirbúningur hans miðast ekki við keppinautinn.

„Þetta er aldrei gott samt. Gunnar æfir eins og hann æfir en auðvitað hugsa menn alltaf á móti hvernig týpu menn eru að fara að berjast og hver það er. Nú er undirbúningstímabilið hjá honum alveg að verða búið og hann hefur verið með Hathaway í huga allan tímann. Hann hefur samt lent í þessu áður og gerir alveg ráð fyrir því að svona gerist,“ segir Haraldur Dean Nelson.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×