Lífið

Faðernisfárið heldur áfram

Guðrún Ansnes skrifar
Jay-Z hefur engan áhuga á að taka prófið.
Jay-Z hefur engan áhuga á að taka prófið. Vísir/Nordicphotos
Rapparinn Jay-Z stendur enn og aftur í stappi vegna mögulegs sonar síns. Hinn tuttugu og eins árs gamli Rymir Satterthwaite, sem einnig er rappari, fór fram á að Jay-Z gengist undir faðernispróf fyrir fimm árum.

Allt kom fyrir ekki og hafði sá síðarnefndi betur fyrir dómstólum og þurfti ekki að taka téð próf. Nú hefur lögmaður stráksa komið auga á mögulegt svindl þess gamla sem orsakar að þau ætla að krefjast þess að faðernispróf verði gert.

Eiginkona Jay-Z er poppdrottningin Beyoncé líkt og margir vita. Eiga þau saman krúttsprengjuna Blue Ivy sem er að slaga í þriggja ára. Hafa skötuhjúin verið gift í sjö ár og saman síðan 1997, svo Queen B var ekki komin til sögunnar er drengurinn kom undir.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×