Viðskipti erlent

Facebook segist ekki hafa orðið fyrir árás

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Facebook, Tinder, Instagram og aðrir samfélagsmiðlar lágu niðri í rúmar 40 mínútur snemma í morgun. Hakkarahópurinn Lizard Squad birti í morgun tíst, sem gáfu í skyn að þeir hefðu gert árás á kerfi Facebook. Þá sagði hópurinn að von væri á fleiri aðgerðum frá þeim.

Forsvarsmenn Facebook segja það þó ekki vera rétt. Á vef BBC er haft talsmanni fyrirtækisins að bilun hafi orðið við breytingar á kerfi samfélagsmiðilsins. Sú bilun teygði anga sína inn í forrit eins og Tinder og Instagram, sem tengjast Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×