Viðskipti erlent

Facebook kynnir nýjungar sem eru á döfinni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, á ráðstefnunni í dag.
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, á ráðstefnunni í dag. Vísir/Getty
Facebook heldur nú stóra ráðstefnu þar sem kynntar eru nýjungar sem eru á döfinni hjá samfélagsmiðlinum. Stærsta breytingin sem Mark Zuckerberg kynnti í ræðu sinni í gær eru breytingar á Messenger-forritinu. Notendur munu geta sent myndir, GIF, tónlist og gert margt fleira. Markmiðið er að gera Messenger af samskiptamiðli, en um forritið verður stutt af minnst 40 öðrum forritum.

Myndbandakerfi Facebook verður einnig breytt. Mögulegt verður að spila 360 gráðu myndbönd sem hægt verður að horfa á með Oculus Rift sýndarveruleikagleraugum og Samsung Gear VR.

Þar að auki verður gert mögulegt að embedda myndbönd af Facebook á aðrar síður. Samkvæmt Mashable, er það liður í sókn Facebook gegn Youtube.

Facebook ætlar einnig að tengja samfélagsmiðil sinn við hið svokallaða „Internet of things“, sem gengur út á að hægt verður að stýra heimilistækjum og öðru í gegnum Facebook. Í rauninni nær þetta til allra mögulegra hluta eins og bílskúrshurða, ljósarofa og ísskápa.

Full Video: Opening Keynote F8 2015

Posted by Facebook Developers on Wednesday, March 25, 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×