Viðskipti erlent

Facebook fast í hringiðu falskra frétta

Samúel Karl Ólason skrifar
Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook.
Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook. Vísir/AFP
Samfélagsmiðlarisinn Facebook hefur þurft að kljást við ásakanir um að falskar fréttir í dreifingu á miðlinum hafi haft áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Sjálfur hefur Mark Zuckerberg sagt það vera fráleitt að falskar fréttir á Facebook hafi haft áhrif á kosningarnar.

Ljóst er að vefsvæði hafi verið stofnuð beinlínis til þess að hagnast á dreifingu falskra frétta á Facebook. Samkvæmt rannsókn Pew Research Center sækja um helmingur Bandaríkjamanna fréttir á Facebook.

Sakaðir um aðgerðaleysi

Nú virðist sem að Facebook hafi búið yfir getu til að koma í veg fyrir dreifingu slíkra frétta en ákvörðun hafi verið tekin um að gera það ekki. Samkvæmt heimildum Gizmodo myndi það hafa umtalsvert meiri áhrif á hægri sinnaða Bandaríkjamenn en þá sem hallast til vinstri.

Facebook segir þessar fregnir þó rangar, án þess að svara spurningum Gizmodo beint.

Fyrr á árinu sökuðu þingmenn Repúblikanaflokksins fyrirtækið um að gefa fréttum um málefni hægri sinnaðra ekki pláss á Facebook. Starfsmenn fyrirtækisins voru sakaðir um að velja fréttir sem þeim sjálfum þættu ásættanlegar í Trending topics svæði samfélagsmiðilsins.

Facebook neitaði fyrir ásakanirnar og sagði svo 15-18 ristjórum Trending topics upp.

Sagðir glíma við viljaleysi

New York Times birti grein um helgina þar sem deilan um Trending topics var sögð hafa dregið verulega úr vilja fyrirtækisins til að gera breytingar sem gætu leitt til þess að notendur drægu hlutdrægni Facebook í efa.

Facebook hefur nú tekið til aðgerða vegna málsins sem og tæknirisinn Google, sem einnig hefur orðið fyrir gagnrýni vegna falskra frétta.

Facebook hefur breytt reglum varðandi auglýsingar á samfélagsmiðlinum. Til að draga úr auglýsingatekjum síða sem dreifa fölskum fréttum.

Google lýsti því yfir í gær að komið verði í veg fyrir að síður sem að dreifa fölskum fréttum fái tekjur í gegnum auglýsingakerfi fyrirtækisins. Aðgerðir Google eru mun umfangsmeiri en aðgerðir Facebook.

Rætt um ábyrgðarleysi

Buzzfeed segir nú frá því að hópur starfsmanna Facebook hafi stofnað óformlegan vinnuhóp til að berjast gegn fölskum fréttum. Mikil umræða er sögð hafa átt sér stað meðal starfsmanna fyrirtækisins varðandi ábyrgð samfélagsmiðilsins og áhrif hans á kosningarnar.

Einn starfsmaður fyrirtækisins segir það deginum ljósara að falskar fréttir hafi verið í mikilli dreifingu á Facebook í aðdraganda kosninganna. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×